Fara í efni

Kræklingur í Hvalfirði

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun hefur í s.l. ár varað við neyslu kræklings úr Hvalfirði.  Ástæða viðvörunnuar var sú að DSP þörungaeitur í skelkjöti hefur greinst yfir viðmiðunarmörkum og eitraður þörungur sem getur valdið DSP eitrun í skelfisk hefur verið á sveimi í firðinum síðast liðið ár.  Tekin voru sýni í byrjun nóvember af sjó úr Hvalfirði og krækling sem sem safnað var við Fossá.  Ekki varð vart við eitraða þörunga í sjónum.  Þörungaeitur greindist en það var undir þeim viðmiðunarmörkum sem sett hafa verið. 

Fólk getur því haldið í fjöru og tínt krækling og gætt sér á uppskerunni. 

Niðurstöður má nálgast hér.

Ítarefni:


Getum við bætt efni síðunnar?