Fara í efni

Jarðhnetur í Wasabi peas dósum

Matvælastofnun varar þá sem hafa ofnæmi/óþol fyrir jarðhnetum við neyslu á Wasabi peas frá Golden turtle vegna þess að varan getur innihaldið jarðhnetur án þess að þeirra sé getið á umbúðum. Fiska.is hefur innkallað vöruna í samráði við Heilbrigðiseftirlit Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Seltjarnarnes og Mosfellsbæjar. Matvælastofnun fékk upplýsingar um vöruna í gegnum RASFF hraðviðvörunarkerfi Evrópu um matvæli og fóður.

Innköllunin á eingöngu við eftirfarandi framleiðslulotu/Best fyrir dagsetningu:

  • Vörumerki: Golden turtle
  • Vöruheiti: Wasabi peas
  • Best fyrir: 24.10.2024
  • Nettómagn: 140 g
  • Geymsluskilyrði: Þurrvara
  • Framleiðandi: Heuschen&Shrouff B.V. 6370 KE Laandgraaf Holland
  • Framleiðsluland: Kína
  • Heiti og heimilisfang fyrirtækis sem innkallar vöru: Fiska.is Nýbýlavegi 6 200 Kópavogur
  • Dreifing: Fiska.is Nýbýlavegi 6 200 Kópavogur

Ítarefni:


Getum við bætt efni síðunnar?