Fara í efni

Íslenskt viskí/viský - Icelandic whisky/whiskey sem verndað afurðarheiti

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun hefur borist umsókn frá Eimverk ehf. þar sem sótt er um vernd fyrir afurðaheitið „Íslenskt viskí/viský- Icelandic Whisky/whiskey“.

Um er að ræða umsókn um vernd afurðarheitis skv. lögum um vernd afurðarheita sem vísa til uppruna, landsvæðis eða hefðbundinnar sérstöðu.

Sótt er í þessu tilviki um vernd sem vísar til uppruna sbr. 4. gr. laga nr. 130/2014. Skv. 2. mgr. 15. gr. sömu laga er heimilt að andmæla fyrirhugaðri skráningu á þessu afurðarheiti og afurðarlýsingu áður en endanleg ákvörðun er tekin um skráningu. Skal það gert innan tveggja mánaða frá birtingu þessarar auglýsingar eða fyrir 7. nóvember 2021.  Andmælum skal skila skriflega til Matvælastofnunar á netfangið mast@mast.is. Afurðalýsingu er að finna hér fyrir neðan.

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?