Fara í efni

Innköllun á sleikjum vegna of mikils flæðis þalata

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

 

Í gegnum viðvörunarkerfi Evrópu (RASFF) hefur komið tilkynning um að innkalla skuli plastsleikjur framleiddar í Kína af fyrirtækinu Ningbo FUTURE Import & Export co og fluttar eru til Íslands frá Hollandi.

Lotunúmer:  170-003000 spatula  -  Númer strikamerkis:  8711295 122446


  Ástæða innköllunar er að flæði þalata úr sleikjunum mældist yfir leyfilegum mörkum. Sleikjurnar eru ekki lengur til sölu hérlendis en vitað er að þær voru seldar á Íslandi á tímabilinu janúar 2009 til loka sumars 2009. Sölustaðir voru markaðir og sölubásar víða um land. Þeir sem eiga sleikju eins og sýnd er á myndinni og eignuðust hana á árinu 2009 er ráðlagt að hætta að nota hana.

Til að mýkja PVC plast er sett í það mýkingarefni. Sum þessara mýkingarefna, svokölluð þalöt eru talin skaðleg heilsu manna. Hætta skapast þegar þalötin leka úr PVC plasti en það getur gerst þegar hlutur snertir heit, fiturík matvæli.

Ljóst er að ekki er hægt að setja öll þalötin undir sama hatt og eru sum þeirra skaðlegri en önnur. Ekki er talin stafa bráð hætta af efnunum heldur er hugsanlega um að ræða áhrif sem gætu komið fram við notkun í lengri tíma. Þalöt voru bönnuð í leikföngum fyrir börn yngri en 14 ára árið 2003 á Íslandi.

Þalötin sem greindust í sleikjunum eru DIBP og DEHP.

Í reglugerð um efni og hluti sem snerta matvæli eru strangar kröfur um hámarksflæði þalata. Ef leifar þeirra eru í hlutum sem ætlað er að snerta matvæli geta þau borist í matvælin, sérstaklega heit, fiturík og/eða súr matvæli. Magn þalata er þó oftast lítið og flæði úr hlut er mest þegar hann er nýr og minnkar eftir endurtekna  þvotta og notkun. Því er oft talið betra að halda áfram að nota gamla plasthluti, en  henda þeim og kaupa nýja.

MAST ráðleggur neytendum að þvo vandlega nýja plasthluti og alla hluti sem ætlað er að snerta matvæli með heitu vatni og sápu áður en þeir eru notaðir í fyrsta skipti.

Ítarefni



    Tilmæli og ákvörðun EB sem varða DEHP



Getum við bætt efni síðunnar?