Innköllun á KEA gamaldags kindakæfu
Frétt -
12.11.2010
Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.
Varan KEA kindakæfa gamaldags kindakæfa, strikamerki: 5690600705198; Kælivara, inniheldur kryddblöndu með innihaldsefnunum hveiti, sojaprótein og sellerí. Þessi efni eru ekki tilgreind í innihaldslýsingu kæfunnar. Framleiðandi vörunnar, Norðlenska, hefur innkallað vöruna og gefið út svohljóðandi yfirlýsingu til neytenda.
Þar sem hveiti, soja og sellerí eru þekktir ofnæmis- og óþolsvaldar er varan varasöm fyrir ákveðna neytendahópa. Varan er örugg og heilnæm fyrir aðra neytendur.
Vara framleidd fyrir 11.11.2010 hefur verið tekin úr sölu í verslunum.
Þeir neytendur sem kunna að eiga vöruna og hafa ofnæmi eða óþol fyrir hveiti, soja eða sellerí eru beðnir um að hafa samband við Norðlenska í síma 840-8883 eða í gegnum netfangið sigurgeir hjá nordlenska.is.