Fara í efni

Hestshaus á Kjalarnesi

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Í síðustu viku hafði lögreglan samband við Matvælastofnun vegna hestshauss sem settur hafði verið á stöng á Kjalarnesi. Aðkoma Matvælastofnunar að rannsókn lögreglu miðaði eingöngu að því að kanna hvort vísbendingar væru um að hesturinn hefði verið aflífaður með ólögmætum hætti. Farið var með hausinn í rannsókn á Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræðum á Keldum. Niðurstaða rannsóknarinnar bendir til þess að hesturinn hafi verið aflífaður á mannúðlegan hátt, með skoti eða boltabyssu í hausinn. Aðkomu Matvælastofnunar að rannsókninni hvað dýravelferð varðar er lokið.


Getum við bætt efni síðunnar?