Fara í efni

Grunur um salmonellu í kjúklingi

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun varar við neyslu á tilteknum ferskum kjúklingi frá Matfugli ehf vegna gruns um salmonellu. Kjúklingurinn er seldur undir vörumerkjum Ali, Bónus og FK. Grunur kom upp um salmonellusmit í einum sláturhópi kjúklinga hjá Matfugli. Fyrirtækið hefur stöðvað dreifingu og vinnur að innköllun á vörunni.

Innköllunin nær einvörðungu til eftirfarandi rekjanleikanúmers:

  • Vöruheiti: Ali, Bónus, FK
  • Rekjanleikanúmer: 215-19-35-1-04
  • Dreifing: Bónusverslanir um allt land, Krónan um allt land og Fjarðarkaup Hafnarfirði

Neytendur sem hafa keypt kjúkling með þessu rekjanleikanúmeri eru beðnir að skila vörunni í viðkomandi verslun eða beint til Matfugls ehf, Völuteigi 2, 270 Mosfellsbæ. Nánari upplýsingar fást hjá Matfugli ehf í síma: 412-1400.

Tekið skal fram að ef leiðbeiningum á umbúðum er fylgt og kjúklingurinn er steiktur í gegn þá er hann hættulaus til neyslu. Tryggja þarf að blóðvökvi komist ekki í aðra matvöru.

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?