Glerbrot fannst í hvítlauksmauki
Frétt -
14.05.2019
Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.
Matvælastofnun varar við neyslu á Blue Dragon Minced Garlic með best fyrir dagsetningunni 04.2021 vegna þess að glerbrot fannst í einni krukku. Fyrirtækið Innnes hefur innkallað vöruna í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur.
Innköllunin á eingöngu við um eftirfarandi lotu:
- Vörumerki: Blue Dragon
- Vöruheiti: Minced Garlic
- Strikanúmer: 010338012700
- Best fyrir lok: 04.2021
- Lotunúmer: DWQ 1088 018
- Nettómagn: 110 g.
- Innflytjandi: Innnes ehf., Fossaleyni 21, 112 Reykjavík
- Dreifing: Varan var seld til verslana Hagkaupa um land allt, Nettó um land allt, Iceland um land allt, Krambúðin Selfossi, Fjarðarkaup, Jónsabúð, Kaupfélags Steingrímsfjarðar, Kaupfélags Skagfirðinga, Verslunar Einars Ólafssonar, Verslunar Kassans á tímabilinu 22.1.2019 til 2.4.2019.
Viðskiptavinum sem keypt hafa Blue Dragon Minced Garlic með best fyrir dagsetningunni 04.2021 er bent á að neyta hennar ekki og farga en einnig er hægt að skila henni í versluninni þar sem hún var keypt gegn fullri endurgreiðslu. Nánari upplýsingar veitir gæðastjóri Innness í síma 532 4000 eða í gegnum netfangið ts@innnes.is.