Fara í efni

Gin- og klaufaveiki í Þýskalandi

Gin- og klaufaveiki greindist í þremur vatnabuffalóum í Þýskalandi þann 9. janúar. Þetta er einn af mest smitandi og alvarlegastu smitsjúkdómum í dýrum. Strangar ráðstafanir hafa verið gerðar í Þýskalandi til að hindra útbreiðslu veirunnar. Matvælastofnun vill minna fólk á að gæta ávallt hreinlætis í umgengni við dýr erlendis, þrífa skófatnað og þvo föt sem hafa verið í snertingu við dýr, áður en komið er heim. Jafnframt er gífurlega mikilvægt að gæta þess að klaufdýr komist ekki í óhitameðhöndluð matvæli.

Dýrin sem greindust voru í hópi 14 buffalóa í Brandenburg. Öll dýrin voru aflífuð. Engin fleiri dýr hafa veikst og eru vonir bundnar við að tekist hafi að eyða smitinu.

Gin- og klaufaveiki hefur ekki greinst í Þýskalandi í 40 ár. Síðasta tilfelli innan Evrópusambandsins var í Búlgaríu árið 2011. Hún er aftur á móti landlæg í mörgum löndum heims og smit getur borist með ýmsum hætti milli landa. Ein algengasta smitleið eru ólöglega innflutt matvæli.

Veikin leggst aðeins á klaufdýr, t.d. nautgripi, sauðfé, geitur og svín. Hún veldur sýktum dýrum skelfilegum þjáningum. Meðal einkenna eru blöðrur og sár í munnholi, í kringum munn og nasir, á spenum og á milli klaufna. Dýrin verða því fljótt treg að éta vegna sársauka í munni og stirð í hreyfingum vegna eymsla í fótum.

Viðbrögð við uppkomu veikinnar í Evrópusambandsríkjum og öðrum löndum þar sem hún er ekki landlæg, eru fyrst og fremst að aflífa öll móttækileg dýr í þeirri hjörð sem sýkingin greinist í. Í ofangreindu tilfelli voru einnig öll klaufdýr á búum í eins kílómetra radíus frá þeim stað sem smitið kom upp aflífuð (eitt svínabú og tvö sauðfjárbú, samtals 261 dýr) og öll klaufdýr á búi með faraldsfræðilega tengingu við upprunabú (eitt bú með 55 geitur og nautgripi).

Jafnframt eru fyrirskipuð ýmis konar höft á tilgreindu svæði umhverfis sýktan stað, m.a. bann við flutningi á dýrum og öllu sem borið getur smitið. Dýr á svæðinu skoðuð og smitið rakið. Kostnaður vegna aðgerða getur orðið gífurlega mikill.

Eins og fyrr segir er um bráðsmitandi sjúkdóm að ræða og veiran sem honum veldur er mjög harðger. Hún getur borist tugi kílómetra með lofti og einnig með fólki, hlutum, farartækjum og fleiru sem hefur verið í nálægð við sýkt dýr. Síðast en ekki síst getur veiran borist með óhitameðhöndluðu kjöti sem mengast hefur af veirunni.

Það skal tekið fram að gin- og klaufaveikiveiran sýkir ekki fólk og fólki stafar því engin hætta af umgengni við sýkt dýr né neyslu afurða.

Matvælastofnun vill minna fólk á að gæta ávallt hreinlætis í umgengni við dýr erlendis, þrífa skófatnað og þvo föt sem hafa verið í snertingu við dýr, áður en komið er heim. Sérstaklega á þetta við fólk sem á sjálft dýr eða starfar í tengslum við dýr. Búfjáreigendur ættu að láta líða a.m.k. 48 klukkustundir áður en þeir fara inn í gripahús eftir heimkomu. Jafnframt er gífurlega mikilvægt að gæta þess að klaufdýr komist ekki í óhitameðhöndluð matvæli.

Nýlega var gefin út og birt á heimasíðu Matvælastofnunar Handbók um viðbrögð við gin- og klaufaveiki. Í henni eru ýmsar upplýsingar um veikina og viðbrögð við henni. Hana er að finna ásamt fleiri skjölum sem tengjast viðbrögðum við gin- og klaufaveiki á upplýsingasíðu Matvælastofnunar um viðbrögð við dýrasjúkdómum.

Nánari upplýsingar um gin- og klaufaveiki og tilfellið í Þýskalandi er m.a. að finna á heimasíðu Alþjóðadýraheilbrigðisstofnunarinnar (WOAH) og á síðu þýska matvæla og landbúnaðarráðuneytisins (BMEL).

Ítarefni

Ýmsar leiðbeiningar og upplýsingar frá EuFMD


Getum við bætt efni síðunnar?