Fara í efni

Frestur til að skila haustskýrslum framlengdur

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Frestur til þess að skila haustskýrslum í Bústofni (www.bustofn.is) hefur verið framlengdur til föstudagsins 1. desember. Tekið skal fram að ekki verður veittur frekari frestur og hvetur Matvælastofnun umráðamenn/eigendur búfjár til þess að skila haustskýrslum innan tilskilins frests. Þá er vakin athygli á 14. gr. laga um búfjárhald, nr. 38/2013, þar sem fram kemur að það varðar mann sektum ef:

e. hann er umráðamaður búfjár og sinnir ekki fyrirmælum Matvælastofnunar um rafræna skráningu skv. 10. gr.

f. hann vanrækir skilaskyldu haustskýrslu skv. 10. gr.

Allir búfjáreigendur geta með auðveldum hætti gengið frá haustskýrslu í Bústofni. Aðgangur að Bústofni fæst með rafrænum skilríkjum eða kennitölu og Íslykli.

Þeir sem ekki hafa tök á því að skila sjálfir í gegnum Bústofn stendur til boða þjónusta Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins, fyrir þá þjónustu er innheimt samkvæmt gjaldskrá RML.

Ítarefni

Your autumn livestock report is now accessible on www.bustofn.is. Deadline for individuals to file their autumn report has been extended to Friday, December 1st 2017.


Getum við bætt efni síðunnar?