Fara í efni

Fræðslufundur: Plast og önnur efni sem snerta mat

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun heldur fræðslufund fyrir framleiðendur og sölu- og dreifingaraðila efna og hluta sem ætlað er að komast í snertingu við matvæli þriðjudaginn 14. apríl kl. 14:00-15:30. Á fundinum verður fjallað um þær reglur sem gilda um efni og hluti sem ætlað er að snerta matvæli, sér í lagi efni og hluti úr plasti.

Flest matvæli komast í snertingu við efni og hluti á meðan á framleiðslu og sölu þeirra stendur. Snertingin getur verið við framleiðslubúnað, vinnslutæki, umbúðir, áhöld o.fl. og geta þessi snertiefni verið uppruni mengunar í matvælum. Öll efni og allir hlutir sem eru í snertingu við matvæli eða er ætlað að komast í snertingu við matvæli þurfa að uppfylla reglur um snertiefni matvæla. Innra eftirlit fyrirtækja, hvort sem er framleiðenda, dreifingaraðila eða matvælafyrirtækja sem nota vörurnar, skal koma í veg fyrir að mengun frá efnum og hlutum berist í matvæli. Á fundinum verða helstu reglur sem gilda um matvælasnertiefni kynntar og gerð grein fyrir megin kröfum sem gerðar eru til framleiðenda, innflytjenda og dreifingaraðila plasts.

Fyrirlesari er Katrín Guðjónsdóttir, sérfræðingur hjá Matvælastofnun.

Skráning á fundinn fer fram á netfanginu skraning@mast.is fyrir 13. apríl og er fundurinn þátttakendum að kostnaðarlausu. Þátttekendur eru beðnir um að taka fram nafn, heiti fyrirtækis og netfang við skráningu.

Fræðslufundurinn verður haldinn í umdæmisskrifstofu Matvælastofnunar í Reykjavík að Stórhöfða 23. Gengið er inn í húsnæði MAST að norðanverðu (Grafarvogsmegin). Allir velkomnir!


Getum við bætt efni síðunnar?