Fara í efni

Fræðslufundur: Eftirlit með áburði og kadmíum

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun, í samstarfi við Landbúnaðarháskóla Íslands og Matís, heldur fræðslufund um eftirlit með áburði miðvikudaginn 8. febrúar 2012 kl. 15:00 - 16:30 á Stórhöfða 23. Á fundinum verður fjallað um framkvæmd áburðareftirlits hérlendis, kadmíum og uppsöfnun þungmálmsins í jarðvegi og landbúnaði, ásamt mögulegum áhrifum þess á lýðheilsu.

Mikil umræða um áburð hófst í byrjun árs í kjölfar birtingu Matvælastofnunar á skýrslu um niðurstöður áburðareftirlits á síðasta ári. Sýnatökur stofnunarinnar leiddu í ljós að áburður frá Skeljungi innihélt tvöfalt til þrefalt meira magn af kadmíum en leyfilegt er hér á landi. Í kjölfarið hófst áköf umfjöllun um kadmíum þar sem gagnrýni á eftirlitið var óvægin. 

Á fræðslufundinum verður fjallað um áburðarnotkun og framkvæmd áburðareftirlits hérlendis. Rætt verður um kadmíummálið svokallaða, birtingu eftirlitsniðurstaðna og nýjar reglur sem heimila birtingu niðurstaðna áburðareftirlits þegar þær liggja fyrir. Uppsöfnun kadmíums í jarðvegi og upptaka í korn, hey og búfé verða til umfjöllunar, auk heilsuspillandi áhrifa kadmíums á fólk ef slík uppsöfnun og upptaka á sér stað.

Hægt verður að fylgjast með fræðslufundinum í beinni útsendingu á vef Matvælastofnunar undir Útgáfa - Fræðslufundir. Þar verður einnig birt upptaka að fræðslufundi loknum.

Fyrirlesarar:

  • Valgeir Bjarnason, sérfræðingur áburðareftirlits hjá Matvælastofnun
  • Ríkharð Brynjólfsson, prófessor við Landbúnaðarháskóla Íslands
  • Ólafur Reykdal, verkefnastjóri hjá Matís

Fræðslufundurinn verður haldinn í umdæmisskrifstofu Matvælastofnunar í Reykjavík að Stórhöfða 23. Gengið er inn í húsnæði stofnunarinnar að norðanverðu (Grafarvogsmegin). Allir velkomnir! 

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?