Fræðsla vegna aukinnar koffín neyslu barna og unglinga
Frétt -
12.04.2010
Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.
Nýir orkudrykkir og orkuskot með mjög háu koffíninnihaldi hafa komið á markað í kjölfar þess að hámarksgildi koffíns í drykkjarvörum var afnumið árið 2008. Kannanir hafa sýnt að neysla Íslendinga á gosdrykkjum er með því hæsta sem gerist, einkum meðal unglinga, sem hafa þannig fengið töluvert koffín úr kóladrykkjum, og vekur aukin neysla á koffíni upp spurningar um heilsuáhrif. Matvælastofnun hefur gefið út fræðsluefni um koffín með það að markmiði að upplýsa börn, unglinga og aðstandendur þeirra um áhrif koffíns á líkamann og þær hættur sem kunna að steðja af ofneyslu þess.
Fræðsluefni
Ítarefni
- Upplýsingar um koffín á vef MAST
- Upplýsingar um orkudrykki á vef MAST
- Upplýsingar um koffín á vef Lýðheilsustöðvar
- Grein um koffín í Morgunblaðinu
- Bæklingur Matvælastofnunar um koffín
- Mælingar á koffíni í drykkjum á íslenskum markaði
- Koffín neysla á Íslandi 2002 (á ensku)
- Áhættumat á koffínneyslu meðal barna og unglinga á Norðurlöndum (á ensku)
- Lög og reglur - Bragðefni