Fara í efni

Fóðureftirlit hjá bændum

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

 


   
Matvælastofnun mun nú í mars hefja eftirlit með fóðri og fóðrun hjá bændum í Ölfushreppi, Ásahreppi og Rangárþingi eystra.  Eftirlitið er í samræmi við reglugerð 107/2010, en þar er innleidd reglugerð EB nr. 183/2005 um kröfur er varða hollustu fóðurs. Kröfur til bænda og annarra frumframleiðenda fóðurs koma fyrst og fremst fram í I. og III. viðauka reglugerðarinnar.  Reglugerðina má finna á heimasíðu MAST undir Lög og reglur/Fóður.  Búfjáreftirlitsmenn munu sjá um eftirlitið samhliða árlegri vorskoðun.

Bændabýli teljast nú fóðurfyrirtæki, eða eins og stendur í skilgreiningu á fóðurfyrirtækjum í reglugerð um matvæli:  „fóðurfyrirtæki“: fyrirtæki sem starfar við framleiðslu, vinnslu, geymslu, flutning eða dreifingu fóðurs, þ.m.t. framleiðsla, vinnsla eða geymsla framleiðanda á fóðri handa dýrum á eigin bújörð.

Í reglugerð um kröfur er varða hollustu fóðurs er mest áhersla lögð á fjögur atriði:

  Skráning starfsstöðva: Skrá þarf alla starfsemi búsins, sem ekki fellur beint undir hefðbundinn búskap, hjá MAST.  Hér er átt við t.d. þurrkunarstöð fyrir bygg eða annað korn, flutning á fóðri, sölu fóðurs, verktöku við slátt eða þreskingu o.s.frv.  Bændur þurfa því að láta MAST vita formlega um alla slíka starfsemi.
  Hollustusamlega meðferð fóðurs: Halda þarf fóðurgeymslum, gjafabúnaði, brynningarbúnaði, flutningstækjum o.s.frv. hreinum og þrifalegum.  Fjarlægja þarf reglulega fóðurleifar og skipta um undirburð o.s.frv.
  Rekjanleiki: Verja þarf fóður gegn meindýrum og utanaðkomandi mengun. Geyma þarf fóður aðskilið frá öðrum efnum eins og áburði, fræjum, hreinsiefnum, olíum og eiturefnum og fjarri tækjum og verkfærum.
  Mengunarvarnir: Fóðurfyrirtæki þurfa að geta rakið aðkeypt fóður skv. lotunúmerum eða framleiðsludagsetningu til seljanda eða framleiðanda. Jafnframt þurfa þau að geta rakið afhent eða selt fóður skv. lotunúmerum eða framleiðsludagsetningu til mótakanda eða kaupanda.

Eftirlit með fóðri hjá bændum hefst, eins og að ofan greinir, í Ölfushreppi, Ásahreppi og Rangárþingi eystra.  Á næstu 5 árum mun samskonar eftirlit eiga sér stað hjá öllum bændum á landinu.  Kostnaður bænda vegna eftirlitsins verður 7.084 kr.

Á býlum þar sem ekki eru gerðar neinar athugasemdir má búast við samskonar eftirliti á 5-15 ára fresti.  Þar sem gerðar eru athugasemdir má búast við heimsókn eftirlitsfólks að nýju innan árs.

Ítarefni




Getum við bætt efni síðunnar?