Fara í efni

Forráðamaður Gæðakokka sýknaður í héraðsdómi

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Fallið hefur dómur í héraðsdómi Vesturlands þar sem forráðamaður fyrirtækisins Gæðakokka var sýknaður af ákæru Sýslumannsins í Borgarnesi um að hafa dreift nautabökum með röngum upplýsingum á umbúðum. Málið var kært af Heilbrigðiseftirliti Vesturlands í kjölfar niðurstöðu eftirlitsverkefnis Matvælastofnunar.

Í niðurstöðu dómsins segir að ekkert hafi komið fram við meðferð málsins sem dragi úr trúverðugleika niðurstöðu Matís og telur dómurinn að óumdeilt sé að umrædd nautabaka hafi ekki innihaldið nautakjöt, eins og hún var sögð innihalda samkvæmt innihaldslýsingu. Þrátt fyrir framangreint var forráðamaðurinn sýknaður á grundvelli þess að ekki hafi legið fyrir fleiri sýni og ekki hafi verið sýnt fram á að útilokað hafi verið að um óhappatilvik hafi verið að ræða. Telur dómurinn að ákæruvaldið hefði átt að hlutast til um frekari rannsókn málsins með töku og rannsókn fleiri sýna.

Markmið verkefnis Matvælastofnunar var að kanna hvort matvæli innihéldu hrossakjöt án þess að það kæmi fram í merkingum. Keyptar voru 16 matvörur í verslunum og lét stofnunin DNA greina kjötinnihald þeirra hjá óháðum faggiltum rannsóknaaðilum (Matís og Keldum). Niðurstöður greininga hjá Matís sýndu ótvírætt að nautabökur frá Gæðakokkum innihéldu ekki nautakjöt þrátt fyrir að það væri tilgreint í umbúðamerkingum.

Tvær bökur úr sömu pakkningu voru teknar til rannsóknar. Eftir að staðfest hafði verið með endurtekinni greiningu á annarri bökunni að hún innihéldi ekki nautakjöt var nýtt sýni úr hinni bökunni tekið til greiningar. Var þá notuð enn næmari rannsóknaraðferð og var niðurstaða fyrri greiningar staðfest. Hvorug bakan innihélt nautakjöt. Sjónrænt mat á fyllingu í nautabökunum, sem átti að innihalda 30% nautakjöt, sýndi sömu niðurstöðu. Engin merki voru um kjöt eða kjöttrefjar.

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?