Fara í efni

Fjárfestingastuðningur í nautgriparækt vegna framkvæmda 2018

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun hefur lokið yfirferð umsókna um fjárfestingastuðning í nautgriparækt vegna framkvæmda á árinu 2018. Alls bárust 190 umsóknir, en sótt var um rafrænt á Bændatorginu. Af þeim voru 181 umsóknir samþykktar, þar af 77 framhaldsumsóknir, en 9 umsóknum var hafnað. Heildarkostnaður við fjárfestingar nautgripabænda vegna framkvæmda á árinu 2018 er samkvæmt samþykktum umsóknum um 6,6 milljarðar króna. Matvælastofnun hefur til úthlutunar samkvæmt fjárlögum ársins 198.276.923 kr. Styrkhlutfall reiknast um 3% af heildarfjárfestingakostnaði, en skerða þurfti framlög hlutfallslega á allar samþykktar umsóknir í samræmi við 25. gr. reglugerðarinnar þar sem fjármunir hrökkva ekki til að greiða hámarksstyrkhlutfall sem er 40%. Í ár reiknast hæsti styrkur 7.247.839 kr. og lægsti styrkur 39.936 kr.

Um fjárfestingastuðning í nautgriparækt er fjallað í VII. kafla reglugerðar um stuðning í nautgriparækt nr. 1181/2017. Fjárfestingastuðningur er veittur vegna framkvæmda sem stuðla að hagkvæmari búskaparháttum, bættum aðbúnaði nautgripa og aukinni umhverfisvernd. Markmið stuðningsins er að hraða því að framleiðendur standist kröfur skv. reglugerð um velferð nautgripa nr. 1065/2014. Stuðningurinn er veittur vegna nýframkvæmda og/eða endurbóta á eldri byggingum og kom fyrst til úthlutunar á árinu 2017 eftir innleiðingu nýrra búvörusamninga.


Getum við bætt efni síðunnar?