Fara í efni

Fiskikör – ílát undir matvæli eða hvað?

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun hefur nú, þriðja sumarið í röð, ráðið menn til eftirlitsstarfa á höfnum. Hlutverk þeirra er að kanna meðferð afla, mæla hitastig og meta löndunaraðstæður á höfnunum. Eftirlit stofnunarinnar hefur leitt í ljós að hreinlæti á löndunarkörum er oft á tíðum verulega ábótavant.

Í veiðiflotann hafa nú bæst við strandveiðibátar, en strandveiðar verða stundaðar hringinn í kringum landið í sumar og fer löndun fram á tæplega 60 höfnum. Löndun á fiski yfir sumarið er því umfangsmikil og brýnt að tryggja viðeigandi hreinlæti og kælingu frá hafi til neytenda. 

Eftirlitsmenn Matvælastofnunar hafa víða orðið varir við óhreinindi í fiskikörum. Einnig berast stofnuninni reglulega kvartanir frá sjómönnum og fiskkaupendum um óhrein og skemmd löndunarkör. Kör sem notuð eru fyrir matvæli þurfa að vera hrein og er það eingöngu tryggt með hreinsun eftir hverja notkun. Jafnframt er óæskilegt að nota fiskikör fyrir annað en matvæli. Kör til annarra nota skal merkja sem slík og ekki nota aftur fyrir matvæli.

Hér eru birtar nokkrar myndir sem eftirlitsmenn hafa tekið af körum á höfnum landsins. Um er að ræða kör sem eru í notkun sem fiskikör, ekki afskrifuð kör sem tekin hafa verið afsíðis. Matvælastofnun mun fylgjast áfram með ástandi kara og hvetur þá sem leggja kör fram til löndunar að minnast þess að körin eru ílát undir matvæli.



Getum við bætt efni síðunnar?