Fara í efni

Fæðubótarefni með hættulegum lyfjaefnum

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun vill vekja athygli á frétt sem birtist í lok síðustu viku á heimasíðu bresku lyfjastofnunarinnar  (Medicines and Healthcare Products Regulatory Agency, MHRA). Í fréttinni varar stofnunin við notkun nokkurra vara vegna þess að niðurstöður rannsókna hafa sýnt fram á að þær innihaldi efnið sibutramine, auk þess sem nokkrar þeirra innihéldu einnig efnið phenopthalein. Vörurnar eru markaðssettar sem megrunarkaffi eða megrunartöflur. Slíkar vörur eru skilgreindar sem fæðubótarefni hér á landi. Efnanna sibutramine og phenolphthalein er ekki getið á innihaldslýsingum varanna.

Vörurnar heita:

  • Fashion Slimming Coffee
  • L-Carnitine + P57
  • L-CarnitinL 360 Slimming Coffee
  • Brazil Potent Slimming Coffee sachets
  • Coffee 26 Original sachets
  • Coffee Nature Fashion Slimming sachets
  • Slender Capsule
  • Slim-1

Sibutramine er lyf sem var afturkallað af markaði í Evrópu, Bandaríkjunum og víðar árið 2010 vegna alvarlegra aukaverkana, einkum tengdum hjarta- og æðakerfi. Phenolphthalein er lyf sem var áður notað sem hægðalosandi, en notkun hefur verið hætt vegna vísbendinga um að það valdi krabbameini. Matvælastofnun hvetur fólk til að kaupa ekki vörurnar eða neyta þeirra þar sem þær geta verið hættulegar heilsu fólks.

Samkvæmt 11. gr. matvælalaga er innflutningur og dreifing matvæla, þ.m.t. fæðubótarefna sem innihalda lyf eða lyfjavirk efni, óheimil. Auk þess er samkvæmt 8.gr. matvælalaga óheimilt að markaðssetja matvæli sem eru ekki örugg til neyslu, þ.e. heilsuspillandi.  Umræddar vörur eru því ólöglegar til innflutnings og markaðssetningar.

Fæðubótarefni eru matvæli sem almennt eru í frjálsu flæði til landsins og því fyrst og fremst undir markaðseftirliti. Eftirlit með fæðubótarefnum á markað er í höndum heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga. Innflutningseftirlit með vörum frá ríkjum utan EES er í höndum Matvælastofnunar og síðustu ár hefur innflutningseftirlit með fæðubótarefnum verið talsvert aukið. 

Samkvæmt reglugerð um fæðubótarefni er innlendum framleiðanda/innflytjanda skylt að tilkynna innflutning/markaðssetningu nýrra fæðubótarefna til Matvælastofnunar. Hlutaðeigandi vörur hafa ekki verið tilkynntar til stofnunarinnar og hefur hún því ekki upplýsingar um að vörurnar séu á almennum markaði hér á landi, en þær gætu verið til sölu á internetinu. Matvælastofnun hefur gert heilbrigðiseftirliti sveitarfélaga viðvart um umræddar vörur og beinir því til neytenda að hafa samband við viðkomandi heilbrigðiseftirlit hafi þeir upplýsingar um vörurnar á innlendum markaði.

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?