Fara í efni

Engin fuglaflensa í æðarfuglum á Rifi

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Í maí og júní á þessu ári var æðarbóndi á Rifi var við aukin dauðsföll meðal æðarfugla á hans svæði. Einnig voru óeðlileg afföll hjá ritum á sama svæði. Rannsóknarsetur Háskóla Íslands á Snæfellsnesi hafði af þessari ástæðu samband við Matvælastofnun. Í samræmi við viðbragðsáætlun stofnunarinnar um fuglaflensu, s.s. þegar um aukin óútskýrð dauðsföll í villtum fuglum er að ræða, voru fjögur æðarfuglahræ send til Tilraunastöðvar HÍ í meinafræði að Keldum og rannsökuð með tilliti til fuglaflensu. Á Keldum voru tekin stroksýni úr fuglunum og þau send til greiningar erlendis. Niðurstöður hafa nú borist Matvælastofnun. Ekki greindust fuglaflensuveirur í sýnunum og fuglaflensa því ekki talin hafa valdið dauða fuglanna.

Auk sýnatökunnar voru allir fuglarnir krufðir á Keldum. Í þeim öllum fundust ummerki um blóðsýkingu og gaf krufningin ekki til kynna að um bótúlisma væri að ræða. Bótúlismi er af völdum bakteríunnar Clostridium botulinum, en erlendis koma af og til upp tilfelli um aukin dauðsföll í villtum fuglum vegna bótúlisma. Orsök aukinna dauðsfalla þessara villtu fugla er því enn óþekkt, en Rannsóknarsetur Háskóla Íslands á Snæfellsnesi er í samstarfi við sérfræðinga í Bandarríkjunum sem rannsaka málið nánar.


Getum við bætt efni síðunnar?