Fara í efni

Endurskoðun skoðunarhandbókar um eftirlit með matvælum úr dýraríkinu

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun hefur gefið út endurskoðaða skoðunarhandbók fyrir eftirlit hjá matvælafyrirtækjum sem framleiða matvæli úr dýraríkinu. Tilgangur bókarinnar er að veita starfsfólki sem starfar við eftirlit leiðbeiningar um hvernig skuli skipuleggja og framkvæma leyfisúttektir og eftirlit. Skoðunarhandbókin nýtist einnig matvælafyrirtækjum sem geta stuðst við innihald hennar til hliðsjónar svo að kröfur matvælalöggjafar séu uppfylltar.

Uppsetning skoðunarhandbókarinnar hefur verið einfölduð og búið er að bæta við einum kafla um sérkröfur fyrir sérstaka starfsemi. Skerpt hefur verið á ýmsum kröfum er varða m.a. notkun á sjó frá eigin veitu til vinnslu matvæla, örverufræðileg viðmið, geymsluþol, lifandi samlokur og mikið unnar afurðir s.s. kollagen, gelatín og kítósan.

Í þessari nýju útgáfu hefur orðið lítilsháttar breyting á númeraröð skoðunaratriða á þann hátt að skoðunaratriði sem áður hafði sérstakt númer gæti hafa verið fellt inn í annað skoðunaratriði.

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?