Fara í efni

Endurnýjun rekstrarleyfis Tungusilungs í Tálknafirði

Matvælastofnun hefur endurnýjað rekstrarleyfi Tungusilungs ehf., Strandgötu 39, 460 Tálknafirði í samræmi við lög um fiskeldi. Matvælastofnun auglýsti tillögu að rekstrarleyfi á vef stofnunarinnar þann 22. mars 2024 og var frestur til að skila inn athugasemdum til 19. apríl 2024.

Tungusilungur ehf. sótti um endurnýjun á rekstrarleyfi vegna 200 tonna hámarkslífmassa til matfiskeldi á bleikju og regnbogasilungi. Umsókn um endurnýjun á rekstrarleyfi var móttekin 8. febrúar 2024. Úttekt starfsstöðvar hefur farið fram og staðfestir Matvælastofnun gildistöku rekstrarleyfis Tungusilungs ehf. FE-1221 en starfsemin er einnig háð starfsleyfi Umhverfisstofnunar.

Heimilt er að kæra ákvörðun Matvælastofnunar um útgáfu rekstrarleyfisins til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur einn mánuður frá birtingu þessarar auglýsingar.

 

Ítarefni:

Rekstrarleyfi Matvælastofnunar til Tungusilungs ehf.

Greinargerð Matvælastofnunar


Getum við bætt efni síðunnar?