Fara í efni

Endurnýjun rekstrarleyfis Klausturbleikju ehf., Kirkjubæjarklaustri

Matvælastofnun hefur endurnýjað rekstrarleyfi Klausturbleikju ehf., Klausturvegi 5, 880 Kirkjubæjarklaustri í samræmi við lög um fiskeldi. Matvælastofnun auglýsti tillögu að rekstrarleyfi á vef stofnunarinnar þann 21. nóvember 2023 og var frestur til að skila inn athugasemdum til 19. desember 2023.

Klausturbleikja ehf. sótti um endurnýjun á rekstrarleyfi vegna 100 tonna hámarkslífmassa til áframeldis á bleikju. Umsókn um endurnýjun á rekstrarleyfi var móttekin 8. nóvember 2023. Úttekt starfsstöðvar hefur farið fram og staðfestir Matvælastofnun gildistöku rekstrarleyfis Klausturbleikju ehf. FE-1220 en starfsemin er einnig háð starfsleyfi Umhverfisstofnunar.

Heimilt er að kæra ákvörðun Matvælastofnunar um útgáfu rekstrarleyfisins til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur einn mánuður frá birtingu þessarar auglýsingar.

 

Ítarefni:


Getum við bætt efni síðunnar?