Fara í efni

Endurnýjun rekstrarleyfis FISK-Seafood ehf. til fiskeldis í Hjaltadal

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun hefur endurnýjað rekstrarleyfi FISK-Seafood ehf. að Hofi í Hjaltadal í samræmi við lög um fiskeldi. Matvælastofnun auglýsti tillögu að rekstrarleyfi á vef stofnunarinnar þann 4. september 2020 og var frestur til að skila inn athugasemdum til 2. október 2020.

FISK-Seafood sótti um endurnýjun á rekstrarleyfi vegna 600 tonna lífmassa á seiða- og matfiskeldi á bleikju að Hofi í Hjaltadal. Umsókn um endurnýjun á rekstrarleyfi var móttekin 14. janúar 2020. Úttekt starfsstöðvar hefur farið fram og staðfestir Matvælastofnun gildistöku rekstrarleyfis FISK-Seafood FE-1150 að Hofi í Hjaltalda en starfsemin er einnig háð starfsleyfi Umhverfisstofnunar.

Heimilt er að kæra ákvörðun Matvælastofnunar um útgáfu rekstrarleyfis til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur einn mánuður frá birtingu þessarar auglýsingar.

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?