Fara í efni

Endurnýjun rekstrarleyfis Benchmark Genetics Iceland til fiskeldis í Kollafirði

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun hefur endurnýjað rekstrarleyfi Benchmark Genetics Iceland hf. að Mógilsárvegi 37B í Kollafirði í samræmi við lög um fiskeldi. Matvælastofnun auglýsti tillögu að rekstrarleyfi á vef stofnunarinnar þann 22. febrúar 2021 og var frestur til að skila inn athugasemdum til 22. mars 2021.

Benchmark Genetics Iceland hf. sótti um endurnýjun á rekstrarleyfi vegna 20 tonna hámarkslífmassa til fiskeldis að Mógilsárvegi 37B í Kollafirði. Umsókn um endurnýjun á rekstrarleyfi var móttekin 4. nóvember 2020. Úttekt starfsstöðvar hefur farið fram og staðfestir Matvælastofnun gildistöku rekstrarleyfis Benchmark Genetics Iceland hf. að Mógilsárvegi 37B í Kollafirði FE-1172 en starfsemin er með gilt starfsleyfi frá Umhverfis- og samgöngusviði Reykjavíkurborgar.

Heimilt er að kæra ákvörðun Matvælastofnunar um útgáfu rekstrarleyfisins til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur einn mánuður frá birtingu þessarar auglýsingar.

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?