Fara í efni

Endurnýjun rekstrarleyfis Arnarlax hf. til fiskeldis að Gileyri, Tálknafirði

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun hefur endurnýjað rekstrarleyfi Arnarlax hf. að Gileyri í Tálknfirði í samræmi við lög um fiskeldi. Matvælastofnun auglýsti tillögu að rekstrarleyfi á vef stofnunarinnar þann 4. júní 2021 og var frestur til að skila inn athugasemdum til 7. júlí 2021.

Arnarlax hf. sótti um endurnýjun á rekstrarleyfi vegna 200 tonna hámarkslífmassa til fiskeldis að Gileyri í Tálknafirði. Umsókn um endurnýjun á rekstrarleyfi var móttekin 28. september 2020. Úttekt starfsstöðvar hefur farið fram og staðfestir Matvælastofnun gildistöku rekstrarleyfis Arnarlax hf að Gileyri í Tálknafirði FE-1183 en starfsemin er með gilt starfsleyfi frá Umhverfisstofnun.

Heimilt er að kæra ákvörðun Matvælastofnunar um útgáfu rekstrarleyfisins til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur einn mánuður frá birtingu þessarar auglýsingar.

 

Ítarefni:


Getum við bætt efni síðunnar?