Eftirlitsdýralæknir í Suðurlandsumdæmi
Frétt -
08.12.2008
Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.
![]() |
Matvælastofnun
óskar eftir að ráða eftirlitsdýralækni tímabundið á umdæmisskrifstofu
Suðurlandsumdæmis. Um er að ræða tímabilið frá 1. janúar 2009 til 31.
desember 2009. |
Nánari upplýsingar um starfið veitir Katrín Andrésdóttir, héraðsdýralæknir Suðurlandsumdæmis í síma 530-4800. Umsóknum ásamt ferilskrá og öðrum nauðsynlegum upplýsingum skal skilað til Matvælastofnunar, Austurvegi 64, 800 Selfoss, merktum dýralæknir Suðurlandi eða á mast@mast.is. Umsóknarfrestur er til og með 22. desember 2008. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi opinberra starfsmanna.