Fara í efni

Eftirlitsdýralæknir í Gullbringu- og Kjósarumdæmi

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun óskar eftir að ráða eftirlitsdýralækni 100% starf á umdæmisskrifstofu stofnunarinnar í Reykjavík. Um er að ræða tímabundna ráðningu til og með 31. ágúst 2011.


Helstu verkefni:


  • Heilbrigðiseftirlit í sláturhúsum
  • Eftirlitsstörf  á sviði dýraverndar og dýravelferðar
  • Samskipti við aðrar stofnanir
  • Önnur tilfallandi störf sem starfsmanni kann að vera falin


Menntunar- og hæfniskröfur:


  • Dýralæknismenntun
  • Æskilegt að umsækjandi hafi starfað við opinbert eftirlit
  • Nákvæmni, frumkvæði og sjálfstæði í starfi
  • Samstarfshæfni og lipurð í mannlegum samskiptum
  • Góð tölvu- og tungumálakunnátta


Nánari upplýsingar um starfið veitir Gunnar Örn Guðmundsson héraðsdýralæknir og Hafsteinn J. Hannesson í síma 530-4800.  Umsóknum ásamt ferilskrá og öðrum nauðsynlegum upplýsingum skal skilað til Matvælastofnunar, Austurvegi 64, 800 Selfoss, merktum “Eftirlitsdýralæknir” eða á mast@mast.is. Umsóknarfrestur er til og með 30. október 2010. Öllum umsóknum verður svarað. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi opinberra starfsmanna.



Getum við bætt efni síðunnar?