Fara í efni

Eftirlit með áburði 2018

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun rannsakaði 50 áburðarsýni af 50 áburðartegundum hjá 5 innflutningsfyrirtækjum á árinu 2018. Fimm áburðartegundir innihéldu of lítið af ákveðnum næringarefnum borið saman við merkingar.

Á árinu 2018 fluttu 26 fyrirtæki inn áburð og jarðvegsbætandi efni alls 334 tegundir. Alls voru flutt inn 52.019 tonn af áburði og jarðvegsbætandi efnum. Innlendir framleiðendur eru 15 á skrá, það eru fyrirtæki sem framleiða áburð eða jarðvegsbætandi efni á landinu. Áburðarfyrirtæki sem voru með skráða starfsemi á árinu eru því 41.

Tafla: Innflytjendur áburðar, magn í kg, magn næringarefnanna köfnunarefnis (N), fosfórs (P) og kalí (K) sem flutt var inn árið 2018

Sýnataka og vöruskoðun var gerð hjá 5 innflutningsfyrirtækjum og voru alls 50 áburðarsýni af 50 áburðartegundum tekin á árinu. Auk þess voru merkingar og umbúðir skoðaðar. 

Við efnamælingar kom í ljós að 5 áburðartegundir voru með efnainnihaldi undir vikmörkum samkvæmt ákvæðum reglugerða. Þrjár voru með of lítið köfnunarefni, ein með of lítinn fosfór og ein með of lítið magnesíum. Þessar 5 tegundir hafa verið teknar af skrá Matvælastofnunar. Þessum áburðartegundum má ekki dreifa til notenda fyrr en Matvælastofnun er búin að taka sýni af þeim og láta efnagreina og niðurstöður þeirra sýni að áburðurinn stenst kröfur. Allar niðurstöður miðast við uppgefin gildi við skráningu og samkvæmt merkingum á umbúðum.

Kadmíum (Cd) var mælt í öllum áburðartegundum sem innihalda fosfór. Efnið var oftast undir mælanlegum mörkum og alltaf undir leyfðu hámarki sem er 50 mg/kg P.

Fáar athugasemdir voru gerðar við merkingar, en helstu gallar voru vegna misræmis milli skráninga og merkinga einnig voru merkingar máðar í nokkrum tilfellum. Þá voru gerðar athugasemdir ef merkingar voru ekki á Íslensku.

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?