Fara í efni

Dýralæknir svínasjúkdóma

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun óskar eftir að ráða í starf dýralæknis svínasjúkdóma á dýraheilbrigðissvið stofnunarinnar. Um er að ræða fullt starf á aðalskrifstofu Matvælastofnunar á Selfossi.

 

Helstu verkefni:

  • Vinna að bættu heilbrigði svína og sjúkdómavörnum á því sviði
  • Umsjón eftirlits með innflutningi svína og erfðaefnis þeirra
  • Upplýsinga- og gagnaöflun ásamt skýrslugerð
  • Samskipti við innlendar og erlendar stofnanir
  • Frumkvæði að framkvæmd nauðsynlegra rannsókna
  • Umsjón eftirlits með notkun dýralyfja
  • Störf á sviði dýravelferðar
  • Önnur tilfallandi störf

 

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Dýralæknismenntun
  • Sérmenntun á sviði svínasjúkdóma æskileg
  • Æskilegt að umsækjandi hafi starfað við opinbert eftirlit
  • Nákvæmni, frumkvæði og sjálfstæði í starfi
  • Samstarfshæfni og lipurð í mannlegum samskiptum
  • Góð tölvu- og tungumálakunnátta

 

Nánari upplýsingar um starfið veita Halldór Runólfsson og Hafsteinn Jóh. Hannesson og í síma 530-4800. Umsóknum ásamt ferilskrá og öðrum nauðsynlegum upplýsingum skal skilað til Matvælastofnunar, Austurvegi 64, 800 Selfossi, merktum “Dýralæknir svínasjúkdóma” eða með tölvupósti á mast@mast.is en umsóknarfrestur er til og með 25. mars 2009. Öllum umsóknum verður svarað. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi opinberra starfsmanna.


Getum við bætt efni síðunnar?