Fara í efni

Dýralæknaþjónusta í dreifðum byggðum - Þjónustusvæði 2

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.
Matvælastofnun auglýsir eftir sjálfstætt starfandi dýralækni til að taka að sér almenna dýralæknaþjónustu og bráðaþjónustu frá og með 1. febrúar 2012, í samræmi við reglugerð nr. 846/2011 með síðari breytingum.

Um er að ræða þjónustusvæði 2 sem er Dalabyggð, Reykhólahreppur, Strandabyggð, Árneshreppur, Kaldrananeshreppur og Bæjarhreppur.

Gerður verður þjónustusamningur við dýralækni/dýralæknaþjónustu og með honum tryggir MAST mánaðarlega greiðslu til að sinna dýralækna- og bráðaþjónustu á þjónustusvæðinu. Stofnunin getur aðstoðað við að finna húsnæði innan svæðisins, en einnig stendur til boða að leigja íbúðarhúsnæði í eigu stofnunarinnar í Búðardal.

Nánari upplýsingar um dýralæknaþjónustuna og gerð þjónustusamnings veita Halldór Runólfsson
 og Hafsteinn Jóh. Hannesson í síma 530-4800. Jafnframt er vísað til reglugerðar  nr. 846/2011 um dýralæknaþjónustu í dreifðari byggðum landsins. Umsóknum um þjónustusvæði skal skilað til Matvælastofnunar, Austurvegi 64, 800 Selfoss, merktum “Dýralæknir – þjónustusvæði 2” eða með tölvupósti á mast@mast.is en umsóknarfrestur er til og með 13. janúar 2012.


Getum við bætt efni síðunnar?