Dýralæknaþjónusta í dreifðari byggðum - Þjónustusvæði 2
Frétt -
23.03.2012
Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.
Matvælastofnun auglýsir eftir sjálfstætt starfandi dýralækni til að taka að sér almenna dýralæknaþjónustu og bráðaþjónustu frá og með 1. maí 2012, í samræmi við reglugerð nr. 846/2011 með síðari breytingum.
Um er að ræða þjónustusvæði 2 sem er Dalabyggð, Reykhólahreppur, Strandabyggð, Árneshreppur, Kaldrananeshreppur og Bæjarhreppur.
Gerður verður þjónustusamningur við dýralækni/dýralæknaþjónustu og með honum tryggir MAST mánaðarlega greiðslu til að sinna dýralækna- og bráðaþjónustu á þjónustusvæðinu. Stofnunin getur aðstoðað við að finna húsnæði innan svæðisins, en einnig stendur til boða að leigja íbúðarhúsnæði í eigu stofnunarinnar í Búðardal.
Nánari upplýsingar veita Halldór Runólfsson og Hafsteinn Jóh. Hannesson í síma 530-4800. Jafnframt er vísað til reglugerðar nr. 846/2011 um dýralæknaþjónustu í dreifðari byggðum landsins. Umsóknum um þjónustusvæði skal skilað til Matvælastofnunar, Austurvegi 64, 800 Selfoss, merktum Dýralæknir þjónustusvæði 2 eða með tölvupósti á starf@mast.is en umsóknarfrestur er til og með 11. apríl 2012.