Fara í efni

DSP-eitrun í skelfiski í Hvalfirði

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Sýnataka í Hvalfirði í byrjun mánaðar leiddi í ljós að magn DSP-eiturs í holdi skelfisks var langt yfir viðmiðunarmörkum. Matvælastofunum varar við söfnun og neyslu á kræklingi úr Hvalfirði þar til að viðvöruninni hefur verið aflétt.

Á heimasíðum Matvælastofnunar og Hafrannsóknastofnunar má sjá upplýsingar um niðurstöður vöktunar á eitruðum þörungum á nokkrum stöðum við landið. Neytendur sem ætla að tína krækling er bent á að kynna sér niðurstöðurnar áður en lagt er af stað í slíka ferð.

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?