Fara í efni

Dreifing mjólkur frá fjórum kúabúum stöðvuð

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun hefur stöðvað dreifingu mjólkur frá fjórum kúabúum í Vesturumdæmi og Suðvesturumdæmi. Ástæður stöðvunarinnar eru skortur á rekjanleika í einu tilfelli og skortur á úrbótum í þremur þrátt fyrir margítrekaðar kröfur Matvælastofnunar.

Rekjanleiki afurða er forsenda þess að hægt sé að hafa eftirlit með matvælum allt frá uppruna þeirra að diski neytenda og að hægt sé að fjarlægja hættuleg matvæli af markaði. Á einum bæjanna gat framleiðandi ekki sýnt fram á uppruna og rekjanleika mjólkur sem dreift var frá búinu. Á hinum bæjunum voru gerðar ítrekaðar kröfur um úrbætur. Kröfurnar sneru ýmist að ófullnægjandi þrifum, viðhaldi, umhverfi, hönnun, skráningum og/eða leyfum. Búunum var veittur lokafrestur til úrbóta en kröfur Matvælastofnunar voru ekki virtar.

Matvælastofnun hefur skv. lögum um matvæli heimild til að stöðva starfsemi og afturkalla starfsleyfi þegar frávik endurtaka sig og tilmæli stofnunarinnar eru ekki virt. Mjólk frá þessum framleiðendum mun ekki verða afhent til vinnslu fyrr en uppfyllt eru gildandi lög og reglur.


Getum við bætt efni síðunnar?