Fara í efni

Banni aflétt á Seglbúðum

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun hefur aflétt banni við markaðssetningu afurða frá Sláturhúsinu Seglbúðum ehf í Skaftárhreppi. Bannið tók gildi 23. febrúar sl. og ástæðan var sú að skömmu áður hafði eftirlitsmönnum Matvælastofnunar verið meinaður aðgangur að húsnæði sláturhússins til reglubundins eftirlits.

Eftirlit hefur nú farið fram án vandkvæða og banninu hefur því verið aflétt frá og með deginum í dag.

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?