Fara í efni

Aukefni og óæskileg efni í fóðri: Nýjar reglugerðir

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.
Settar hafa verið tvær nýjar reglugerðir um breytingar á reglugerð nr. 340/2001 um eftirlit með fóðri. Í reglugerð nr. 41/2007 um 25. breytingu á ofangreindri reglugerð er lögfest reglugerð framkvæmdastjórnar (EB) nr. 521/2005 frá 1. apríl 2005.  Reglugerðin fjallar um "varanlegt leyfi fyrir aukefni og bráðabirgðaleyfi fyrir nýrri notkun tiltekinna aukefna sem þegar er leyft að nota í fóður".

Í reglugerð nr. 365/2007 um 26. breytingu á reglugerð nr. 340/2001 um eftirlit með fóðri er tilskipun framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 13/2006, frá 3. febrúar 2006 lögfest.   Þar er kveðið á um breytingar á viðmiðunarmörkum fyrir óæskileg efni í fóðri sem kveðið er á um í 27. lið töflu í B. hluta 1. viðauka, II. kafla, reglugerðar nr. 340/2001. Jafnframt er kveðið á um aðgerðamörk óæskilegra efna í afurðum sem ætlaðar eru í fóður, þ.e. breytingu á C. hluta 1. viðauka, II. kafla, reglugerðar nr. 340/2001.

Hvorutveggja reglugerðanna má finna á heimasíðu Landbúnaðarstofnunar eða með því að smella hér.



Getum við bætt efni síðunnar?