Fara í efni

Aukaefni og ofvirkni

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Birtar voru í Lancet 6. september sl. niðurstöður rannsókna sem háskólinn í Southampton vann í samráði við bresku matvælastofnunina (Food Standard Agency). Tilgangur rannsóknarinnar var að kanna hvort neysla á blöndu af nokkrum litarefnum og einu rotvarnarefni hefði áhrif á hegðunarmunstur barna. Um er að ræða eftirfarandi efni:

 


  • Litarefnin: tartrasín (E 102), quinoline yellow (E104),
  • sunset yellow FCF (E 110), asórúbín (E 122),
  • ponceau 4R (E 124) og allúra rautt ( E 129).
  • Rotvarnarefni: natríumbensóat (E 211).


Litarefnin voru notuð í tveimur mismunandi blöndum en rotvarnarefnið var í báðum blöndunum. Niðurstöður rannsóknarinnar gefa til kynna að hugsanlega geti neysla á blöndu af þessum rotvarnar- og litarefnum haft áhrif á hegðunarmunstur barna á þann hátt að ofvirkni aukist.


Niðurstöður rannsóknanna hafa verið metnar af óháðri vísindanefnd í Bretlandi. Matvælaöryggistofnun Evrópu (EFSA) mun meta niðurstöðurnar á fundi í september. Umhverfisstofnun mun fylgjast með meðferð málsins og setja hér inn þær upplýsingar sem kunna að berast.


Þess má geta að EFSA vinnur nú að endurskoðun á mati á öllum leyfðum aukefnum og er endurskoðun litarefna hafin. EFSA gerir síðan tillögur til Evrópusambandsins um breytingar ef ástæða er til. Evrópusambandið (EB) ákveður síðan hvort og hvernig skuli breyta aukefnalöggjöfinni. Ísland tekur síðan upp aukefnareglur EB.


Leyfilegt er að nota þau rotvarnar- og litarefni sem rannsóknin náði til í ýmsar matvörur svo sem sælgæti og drykkjarvörur. Umhverfisstofnun vill benda neytendum á að í vörumerkingum matvæla á að merkja þau aukefni sem í vörunni er að finna. Það á því að vera auðvelt fyrir þá sem vilja forðast framantalin rotvarnar- og litarefni að lesa innihaldslýsingar á pakkningum matvæla og ganga þannig úr skugga um hvort efnin er að finna í vörunni. Verslanir eiga að gefa upplýsingar um innihald sælgætis sem selt er í lausu sé eftir því spurt, eða hafa upplýsingar við sælgætisbari.


Niðurstöður rannsóknarinnar:


Food additives and hyperactive behaviour in 3-year-old and 8/9-year-old children in the community: a randomised, double-blinded, placerbo-controlled trial. McCann D o.fl. The Lancet Online 6. sept. 2007. DOI:10.1016/S0140-6736 (07) 61306-3


Aukefni skulu merkt á umbúðir matvæla með E númeri eða heiti efnis. Auk þess skal merkja aukefnaflokk sem lýsir í hvaða tilgangi efnið er notað s.s. litarefni.
Merkingar skulu vera á íslensku, ensku eða norðurlandamáli öðru en finnsku. Hér eru nöfn umræddra efna á þessum tungumálum:



Íslenska

danska

norska

sænska

enska

E 102

tartrasín

tartrazin

tartrazin

tartrazin

Tartrazine

E104

kínólíngult

quinolingult

kinolingult

kinolingult

Quinoline yellow

E 110

sunset yellow FCF

sunset yellow

paraoransje

para-orange

Sunset yellow

E 122

asórúbín

azorubin

azorubin

azorubin

Carmoisine

E 124

ponceau 4R

ponceau 4R

nykockin

nykockin

Ponceau 4R

E 129

Allúra rautt AC

allura red

allurarød

allurarött AC

Allura Red

E 211

natríumbensóat

natriumbenzoat

natriumbenzoat

natriumbensoat

Sodium benzoate


Getum við bætt efni síðunnar?