Ársskýrsla MAST 2020
Frétt -
18.05.2021
Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.
Matvælastofnun hefur gefið út rafræna ársskýrslu fyrir árið 2020. Í skýrslunni er að finna upplýsingar um frammistöðu starfsgreina undir eftirliti stofnunarinnar, umfang eftirlits, rekstrartölur, vöktun efnaleifa í matvælum, smitsjúkdóma í dýrum, inn- og útflutning dýra og matvæla, ásamt upplýsingum um ábendingar og fyrirspurnir til stofnunarinnar.