Fara í efni

Ákvörðun um skráningu vegna fiskeldis til Víkurlax ehf. í Eyjafirði

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Í samræmi við reglugerð nr. 1133/2021 hefur Matvælastofnun ákveðið að skrá Víkurlax ehf. með fiskeldi í Eyjafirði. Um er að ræða landeldi á regnbogasilung og bleikju í tjörnum og kerjum utandyra.

Víkurlax sótti um skráningu vegna 12 tonna hámarkslífmassa í matfiskeldi á regnbogasilungi (Oncorhynchus mykiss) og bleikju (Salvelinus alpinus). Umsókn um skráningu var móttekin þann 21. febrúar 2022. Starfsemin er einnig háð starfsleyfi Umhverfisstofnunar.

Heimilt er að kæra ákvörðun Matvælastofnunar um skráningu til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur einn mánuður frá birtingu þessarar auglýsingar.

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?