Fara í efni

Ákvörðun um skráningu vegna fiskeldis til Ævintýradalurinn ehf. að Heydal í Mjóafirði

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Í samræmi við reglugerð nr. 1133/2021 hefur Matvælastofnun ákveðið að skrá Ævintýradalurinn ehf. með fiskeldi að Heydal í Mjóafirði. Um er að ræða landeldi á bleikju í kerjum.

Ævintýradalurinn sótti um skráningu vegna 20 tonna hámarkslífmassa í matfiskeldi á bleikju (Salvelinus alpinus). Umsókn um skráningu var móttekin þann 27. janúar 2022. Starfsemin er einnig háð starfsleyfi Umhverfisstofnunar.

Heimilt er að kæra ákvörðun Matvælastofnunar um skráningu til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur einn mánuður frá birtingu þessarar auglýsingar.

 

Ítarefni

Staðfesting skráningar Matvælastofnunar til Ævintýradalurinn ehf.

Starfsleyfi Umhverfisstofnunar


Getum við bætt efni síðunnar?