Fara í efni

Aðilaskipti að greiðslumarki sauðfjár verða óheimil

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Aðilaskipti að greiðslumarki sauðfjár verður óheimil frá og með 1. júní 2019 í samræmi við breytingu á búvörulögum sem samþykkt var á Alþingi þann 15. maí 2019. Þó verður heimil tilfærsla greiðslumarks milli lögbýla í eigu sama aðila og við ábúendaskipti eða breytingu skráningar ef um hjón eða sambúðarfólk er að ræða. Aðilaskipti taka gildi 1. janúar ár hvert og beingreiðslur greiðast nýjum handhafa frá sama tíma. Síðasti dagur til að tilkynna um aðilaskipti er 31. maí 2019. Rétt er að taka fram að skv. stjórnarfrumvarpinu sem sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra lagði upphaflega fram var gert ráð fyrir að aðilaskipti að greiðslumarki yrðu óheimil frá og með 1. september 2019, en dagsetningin var færð til 1. júní í meðförum Alþingis.

Við tekur síðan innlausnarfyrirkomulag, sem búnaðarstofa Matvælastofnunar mun annast, í samræmi við endurskoðun á sauðfjársamningi sem var samþykktur af stjórnvöldum og sauðfjárbændum í upphafi ársins. Innlausnarfyrirkomulagið verður nánar útfært í reglugerð ráðherra, sem verður gefin út í sumar. 

Ráðherra hefur nú skrifað undir breytingu á reglugerð um stuðning við sauðfjárrækt í dag 23. maí 2019 í samræmi við fyrrgreinda breytingu á búvörulögum.

Frétt uppfærð 23.05.19 kl. 15:02


Getum við bætt efni síðunnar?