Fara í efni

Agúrkusalat innkallað vegna aðskotahlutar (glerbrots)

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun fékk upplýsingar frá dönskum yfirvöldum um innköllun á matvælum vegna aðskotahlutar og áframsendi tilkynninguna til Matvælaeftirlits Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur sem fór í aðgerðir í samvinnu við innflutningsfyrirtækið og hefur stöðvað sölu og innkallað frá neytendum eftirfarandi matvæli: 

 


  • Vörumerki:  First Price. 
  • Vöruheiti:  Agurkesalat. 
  • Ábyrgðaraðili; framleiðandi, innflytjandi og/eða dreifingaraðili:  Samsø Konservesfabrik.  Innflutt til Íslands og dreift af Kaupási hf., Bíldshöfða 20, 110 Reykjavík. 
  • Auðkenni/skýringartexti:   Þyngd 550 g, best fyrir dagsetning 1. júní 2014, lotunúmer (á loki) 1506112200 til og með 1506112400, strikanúmer 5701410341565.  Glerbrot fannst í einni krukku og teljast umræddar lotur því óhæfar til neyslu. 
  • Laga- /reglugerðarákvæði:  14. gr. fylgiskjals I við reglugerð nr. 102/2010 um gildistöku reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 178/2002 um almennar meginreglur og kröfur samkvæmt lögum um matvæli, um stofnun Matvælaöryggisstofnunar Evrópu og um málsmeðferð vegna öryggis matvæla auk áorðinna breytinga, 8. og 30. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breytingum 
  • Áætluð dreifing innanlands:  Verslanir Nóatúns, Krónunnar og Kjarvals um land allt.  Samkvæmt upplýsingum frá Matvælastofnun flutti Kaupfélag Skagfirðinga þessa vöru einnig inn til landsins.


Ítarefni




Getum við bætt efni síðunnar?