Fara í efni

Aðgerðir vegna matvæla sem innhalda mengað aukefni (E410)

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Aðgerðir vegna matvæla sem innhalda mengað aukefni (E410)

Uppfært 16.8.2021 - Undanfarna mánuði hafa mörg lönd innan Evrópusambandsins orðið vör við að ákveðnar framleiðslulotur af aukefninu karóbgúmmí (E 410) hafa reynst mengaðar af etýlenoxíði sem er ólöglegt varnarefni. Matvæli sem innihalda mengað karóbgúmmí ber að taka af markaði.

Upplýsingarnar hafa borist Matvælastofnun með RASFF (Rapid Alert System for Food and Feed) viðvörunarkerfi Evrópusambandsins og EFTA-ríkjanna fyrir matvæli og fóður. 

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins og aðildarríki ESB hafa lagt fram sameiginlegar leiðbeiningar um hvernig meðhöndla skuli matvæli sem innihalda þessi efni  á samræmdan hátt.

Matvælastofnun hefur haft samband við fyrirtæki og eftirlitsaðila sem málið snertir. Vinna er hafin við að finna þessar vörur og taka af markaði. Efnið er m.a. notað í ís, unnar kjötvörur og sósur. Matvælafyrirtæki sem nota karóbgúmmí í framleiðslu sína eru hvött til að kanna það hjá birgja hvort efnið sé öruggt.

Etýlenoxíð hefur ekki bráða eiturvirkni en efnið hefur erfðaeituráhrif (getur skaðað erfðaefnið) og getur því haft skaðleg áhrif á heilsu. Efnið er notað sem varnarefni í ákveðnum heimshlutum, til dæmis til að sótthreinsa fræ og krydd. Ekki er leyfilegt að nota etýlenoxíð við matvælaframleiðslu innan ESB, né setja á markað matvæli sem innihalda það.

Samkvæmt samræmdum leiðbeiningum Framkvæmdastjórnar ESB og aðildarlanda, auk Noregs og Íslands, á að innkalla allar vörur sem innihalda efni menguð með etýlenoxíði. Þessar ráðstafanir eru íþyngjandi fyrir þau fyrirtæki sem um ræðir en aðgerðirnar eru nauðsynlegar til að tryggja öryggi neytenda enda ekkert magn etýlenoxíðs fullkomlega öruggt.  Matvælafyrirtæki sem hafa fengið tilkynningu um að mengað karóbgúmmi hafi verið notað í matvæli sem þau dreifa ber að stöðva drefingu þeirra, taka þau af markaði og innkalla frá neytendum. Það sama gildir um innlenda framleiðendur sem notað hafa mengað karóbgúmmí í sína framleiðslu.  Tilkynna skal slíkar aðgerðir til eftirlitsaðila fyrirtækisins.

Á síðasta ári var töluvert um innkallanir á vörum sem innhéldu sesamfræ sem innihélt þetta ólöglega varnarefni.  

Ítarefni:


Getum við bætt efni síðunnar?