Fara í efni

Ábyrgar smitvarnir í tengslum við dýr

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Að gefnu tilefni vill Matvælastofnun hvetja alla til að stunda ábyrga hegðun varðandi snertingu við dýr, umhverfi þeirra og afurðir. Almennt hreinlæti og handþvottur er lykilatriði til að koma í veg fyrir að matvæli og fólk smitist.

Undanfarnar vikur hefur fólk sýkst af eiturmyndandi E. coli (STEC) bakteríu á bænum Efstadal 2 og tengist það heimsóknum á bæinn. Vitað er að E. coli bakteríur lifa í þörmum dýra og eru í öllu umhverfi þeirra og eru almennt meinlausar. Í Efstadal er á ferð einstaklega skæður stofn, E.coli O026 og gæti þessi stofn verið víðar og því ber ætíð að gæta fyllstu varúðar í allri umgengni við dýr og meðferð matvæla í nálægð við dýr. Í þessu felst að þvo sér alltaf um hendur áður en matar er neytt og láta börn þvo sér eftir snertingu við dýr þar sem þau eru gjörn á að setja fingur oft í munn. Sótthreinsun með handspritti ein og sér er ekki nægjanleg, ætíð skal þvo hendur fyrst.

Til þess að sýkja fólk þá þarf bakterían að komast niður í meltingarveg um munn, svo sem með því að borða smituð matvæli eða sleikja óhreinar hendur. Sama á við um aðrar sjúkdómsvaldandi bakteríur sem geta verið til staðar í heilbrigðum dýrum. Vitað er að 60% sýkinga í fólki í heiminum eru súnur, en það eru sjúkdómar sem berast milli manna og dýra. Umgengni við dýr getur haft jákvæð áhrif á heilsu og líðan manna en hafa skal í huga að smitefni getur borist á milli manna og dýra.

Ítarefni

 

 


Getum við bætt efni síðunnar?