Fara í efni

Áburðareftirlit 2023

Á árinu 2023 fluttu 22 fyrirtæki inn áburð og jarðvegsbætandi efni alls 305 tegundir. Alls voru flutt inn 77.892 tonn af áburði og jarðvegsbætandi efnum. Innlendir framleiðendur eru 18 á skrá, það eru fyrirtæki sem framleiða áburð eða jarðvegsbætandi efni á landinu. Áburðarfyrirtæki sem voru með skráða starfsemi á árinu eru því 40.

Sýnataka og vöruskoðun var gerð hjá 5 innflutningsfyrirtækjum og voru alls 24 áburðarsýni af 24 áburðartegund tekin á árinu. Auk þess voru merkingar og umbúðir skoðaðar.

Við efnamælingar kom í ljós að 4 áburðartegundir voru með efnainnihaldi undir leyfðum vikmörkum samkvæmt ákvæðum reglugerða. Tvær áburðartegundir voru með of lítið köfnunarefni (N), ein með of lítinn fosfór (P), ein með of lítinn brennistein (S) og ein með of lítinn bór (B). Þá var ein áburðartegund bæði fjölkorna og einkorna, en slíkt er ekki leyfilegt. Þessar áburðartegundir hafa verið teknar af skrá Matvælastofnunar. Þeim má ekki dreifa til notenda fyrr en Matvælastofnun er búin að taka sýni af þeim og láta efnagreina og niðurstöður þeirra sýni að áburðurinn stenst kröfur. Allar niðurstöður miðast við uppgefin gildi við skráningu og samkvæmt merkingum á umbúðum.

Kadmíum (Cd) var mælt í öllum áburðartegundum sem innihalda fosfór. Efnið var oftast undir mælanlegum mörkum og alltaf undir leyfilegu hámarki sem var 150 mg/kg P. Einnig voru gerðar mælingar á fleiri óæskilegum efnum og voru þau öllum tilfellum undir þeim mörkum sem gefin eru upp í nýrri reglugerð um áburðarvörur.

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?