Fara í efni

Áburðareftirlit 2022

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Á árinu 2022 fluttu 20 fyrirtæki inn áburð og jarðvegsbætandi efni alls 334 tegundir. Alls voru flutt inn 50.809 tonn af áburði og jarðvegsbætandi efnum. Innlendir framleiðendur eru 17 á skrá, það eru fyrirtæki sem framleiða áburð eða jarðvegsbætandi efni á landinu. Áburðarfyrirtæki sem voru með skráða starfsemi á árinu eru því 37.

Sýnataka og vöruskoðun var gerð hjá 5 innflutningsfyrirtækjum og voru alls 41 áburðarsýni af 41 áburðartegund tekin á árinu. Auk þess voru merkingar og umbúðir skoðaðar.

Við efnamælingar kom í ljós að 3 áburðartegundir voru með efnainnihaldi undir leyfðum vikmörkum samkvæmt ákvæðum reglugerða. Þessar 3 áburðartegundir voru með of lítið magnesíum. Þær hafa verið teknar af skrá Matvælastofnunar. Þessum áburðartegundum má ekki dreifa til notenda fyrr en Matvælastofnun er búin að taka sýni af þeim og láta efnagreina og niðurstöður þeirra sýni að áburðurinn stenst kröfur. Allar niðurstöður miðast við uppgefin gildi við skráningu og samkvæmt merkingum á umbúðum.

Kadmíum (Cd) var mælt í öllum áburðartegundum sem innihalda fosfór. Efnið var oftast undir mælanlegum mörkum og í einu tilfelli við leyfilegt hámark sem er 50 mg/kg P.

Áburðareftirlit 2022


Getum við bætt efni síðunnar?