Fara í efni

Vinnsla lambshorna heimiluð með skilyrðum

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið hefur fellt úr gildi synjun Matvælastofnunar um veitingu leyfis til Fossa Enterprises ehf. fyrir vinnslu lambshorna sem nagvöru fyrir hunda. Ráðuneytið hefur lagt það fyrir Matvælastofnun að meta hvort hornin séu hæf til nýtingar með tilliti til sýkingarhættu og heimila nýtingu þeirra ef svo er.

Árið 2016 fékk Matvælastofnun vitneskju um flutning og geymslu lambshorna Fossa Enterprises ehf. í Bolungavík sem ekki hafði verið sótt um leyfi fyrir. Nýta átti hornin sem hundafóður.

Við úttekt á frysti fyrirtækisins í Bolungavík kom í ljós að verulegt magn pakkninga með hornum í hafði þegar verið flutt inn í hann og stóðu flutningar yfir. Flutningur og geymsla aukaafurða dýra eru leyfisskyld og háð reglum sem miða að því að tryggja heilnæmi afurða og lágmarka hættu á útbreiðslu smitsjúkdóma.

Matvælastofnun synjaði nýtingu þessara horna á grundvelli eftirtaldra frávika frá ákvæðum laga og reglugerða:

  1. Hornin voru flutt í geymsluna áður en lögbundin leyfisúttekt fór fram og tilskilið leyfi fengið.
  2. Lögbundin viðskiptaskjöl fylgdu ekki vörunni.
  3. Merkingar umræddra lambshorna  töldust ófullnægjandi.

Samkvæmt úrskurði ráðuneytisins hafi Matvælastofnun gefið Fossa Enterprises ehf. þær upplýsingar að mögulegt væri að sýna fram á rekjanleika umræddra lambshorna. Matvælastofnun hefði átt að gæta betur að leiðbeiningar- og rannsóknarskyldu sinni. Ráðuneytið segir jafnframt að taka hefði átt meira tillit til hagsmuna og réttinda fyrirtækisins við töku stjórnvaldsákvörðunar í málinu og því hafi meðalhófs ekki verið gætt.  Fyrirtækinu er heimilað að nota hornin, með því skilyrði að fyrirtækið geti sýnt fram á með viðurkenndum mælingum, að hornin séu hæf til nýtingar með tilliti til sýkingarhættu. Matvælastofnun á síðan að meta þær niðurstöður.

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?