Fara í efni

Varað við tínslu á skel

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Alexandrium og Dinophysis þörungar  hafa greinst undanfarið í sjósýnum sem hafa verið tekin í Hvalfirði, Breiðafirði,  Mjóafirði-eystri og Steingrímsfirði.  Útbreiðsla þessara þörunga annars staðar við landið er ekki þekkt. 

Það er því varað við tínslu á krækling (bláskel) og annarra skeltegunda við landið. Sú þumalfingurregla sem er þekkt að ekki skuli tína skel til neyslu í mánaðarheitum sem eru ekki með r er því í fullu gildi.  


Alexandrium þörungar geta valdið PSP eitrun og Dinophysis þörungar DSP eitrun. Nánari upplýsingar um einkenni eru hér


Tekið skal fram að kræklingur sem fer á markað sætir ströngu eftirliti og fer ekki á markað fyrr en sýnt hefur verið fram á að magn þörugnaeiturs sé innan þeirra marka sem sett hafa verið. 


Hægt er að fylgjast með niðurstöðum þörungavöktunar á heimasíðum Matvælastofnunar og Hafrannsóknarstofnunar.


Getum við bætt efni síðunnar?