Vanmerktur ofnæmis- og óþolsvaldur í Vínarköku
Frétt -
23.01.2015
Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.
Matvælastofnun hefur fengið upplýsingar frá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur um að Myllan, í samráði við heilbrigðiseftirlitið, hafi tekið af markaði og innkallað frá neytendum Vínar súkkulaði og appelsínuköku vegna vanmerkts ofnæmis- og óþolsvalds.
- Vöruheiti: Vínar súkkulaði og appelsínukaka
- Ábyrgðaraðili; framleiðandi, innflytjandi og/eða dreifingaraðili: Myllan, Skeifunni 19
- Auðkenni/skýringartexti: Varan inniheldur ómerktan ofnæmis-og óþolsvald, sojaafurð
- Laga- /reglugerðarákvæði: a)- og c) liðir 8. gr. og 30. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breytingum
- Áætluð dreifing innanlands: Allar helstu matvöruverslanir á landinu.