Vanmerktur ofnæmis- og óþolsvaldur í kjötvörum
Frétt -
21.10.2013
Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.
Matvælastofnun hefur fengið upplýsingar frá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur um vanmerktar vörur á markaði m.t.t. ofnæmis-og óþolsvalds (hveiti). Vegna mistaka var nýr merkimiði settur á vörurnar án þess að geta þess að hveiti væri eitt af innihaldsefnunum. Vörurnar voru eingöngu seldar hjá Stórkaupum, Faxafeni 8, 108 Reykjavík.
- Vöruheiti: Beikonbollur
- Þyngd: 2 kg.
- Geymsluþol: Best fyrir 09.02.14
- Framleiðandi: Sláturfélag Suðurlands, Hvolsvelli
- Geymsluskilyrði: Frystivara
- Dreifing: Stórkaup
- Vöruheiti: Cordon Blue
- Þyngd: 2 kg
- Geymsluþol: Best fyrir 18.01.14
- Framleiðandi: Sláturfélag Suðurlands, Hvolsvelli.
- Geymsluskilyrði: Frystivara
- Dreifing: Stórkaup
Vörurnar hafa verið innkallaðar og merkingar lagaðar. Vörurnar eru hættulausar nema fyrir þá sem hafa ofnæmi- og óþol fyrir innihaldsefninu. Þeir neytendur sem gætu átt umræddar vörur og eru viðkvæmir fyrir hveiti geta skilað þeim til Stórkaupa.
Samkvæmt matvælalöggjöfinni eiga ofnæmis-og óþolsvaldar að vera skýrt merktir í merkingum matvæla. Meðfylgjandi eru myndir af vörunum.
Ítarefni
- Mynd af vörunum: Beikonbollur / Cordon Bleu
- Upplýsingasíða Matvælastofnunar um innkallanir