Fara í efni

Útgáfa starfsleyfis vegna vinnslu á hvalaafurðum

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Hefðbundin útgáfa starfsleyfa Matvælastofnunar til matvælavinnslu byggir á skilgreindu verklagi þar sem fyrst er gefið út skilyrt starfsleyfi til þriggja mánaða í kjölfar fyrstu skoðunar á vinnslu og gögnum sem eru til staðar.  Á þeim tíma reynir á hvort innra eftirlit starfsleyfishafa virkar eins og áætlað var.  Að þeim tíma liðnum er áætlað að fara í aðra úttekt, skilyrði sannreynd og fullgilt leyfi gefið út. 

Þetta átti sér stað 2018 fyrir Hval hf. en í seinni úttekt kom í ljós að það vantaði ákveðin gögn í tengslum við innra eftirlit og áhættumat, svo ekki var hægt að gefa út fullgilt starfsleyfi á grundvelli reglugerðar nr. 489/2009 með síðari breytingu 29. maí 2018. 

Fullnægjandi gögn bárust ekki fyrr en haustið 2021 og var þá gefið út fullgilt leyfi.

Stofnuninni bárust engar tilkynningar um að vöntun á fullgildu leyfi væri að hamla veiðum og vinnslu.  Hvalur hf. gaf allt aðrar skýringar á því í fjölmiðlum á árunum 2019 – 2021 að hvalveiðar lágu niðri af hálfu fyrirtækisins umrædd ár.


Getum við bætt efni síðunnar?